NODEM 08 í Reykjavík 3.-5. desember
NODEM stendur fyrir Nordic Digital Excellence in Museums – eða framúrskarandi notkun á stafrænni miðlun í safnastarfi á Norðurlöndum. Um er að ræða ráðstefnu og sýningu sem haldin er reglulega fyrir safnafólk og aðila í tækni- og hönnunargeiranum.
Markmiðið er að miðla þekkingu og aðferðum til stafrænnar miðlunar, efla samvinnu á því sviði og gera hana sýnilega á alþjóðavísu. Með NODEM skapast grundvöllur að samvinnu milli safna, en ekki síður samvinnu við rannsóknaraðila og fyrirtæki, eða þá sem þróa lausnir til miðlunar á norrænum menningararfi. NODEM eflir þannig stafræna miðlun í safnageiranum á Norðurlöndunum, eykur þekkingu og styrkir umræðu um þróun í safnastarfsemi.
NODEM 2008 verður á Íslandi 3.-5. desember 2008 og er þema ráðstefnunnar að þessu sinni Experiences in Natural and Cultural Heritage. Innan þessa þema rúmast fjölbreyttir fyrirlestrar og kynningar – frá söfnum, setrum og safnafólki, fræðimönnum og fyrirtækjum í hönnun og tækni – um miðlun náttúru- og menningararfs, áhugaverð verkefni og sýningar, rannsóknir á þessu sviði og tæknilegar útfærslur, eins og viðmótstækni, vélbúnaður og hugbúnaðarlausnir. Hér á vefsíðu NODEM 08 er að finna leiðbeiningar fyrir þá sem vilja bjóða fram fyrirlestra eða kynningar.
Ráðstefnan verður haldin í ,Öskju náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Í opnu rými framan við fyrirlestrasali verður sýning þar sem kynnt verða áhugaverð verkefni, hvort sem er heilar sýningar, einstakar lausnir við miðlun eða tæknilegar útfærslur. Þátttakendur geta verið jafnt rannsóknarhópar, sýningar og söfn, hönnuðir, hugbúnaðarfyrirtæki og aðrir sem starfa á sviði stafrænnar miðlunar. Á sýningunni geta til dæmis verið veggspjöld, hljóð, mynd og tæki. Ráðstefnan sér þátttakendum fyrir aðstöðu, nægum rafmagnstengingum og netsambandi en þátttakendur leggja sjálfir til þau tæki sem þeir þurfa. Sýnendum verður veitt aðstoð við að leigja tæki ef þörf krefur. Hér á vefsíðunni er að finna leiðbeiningar fyrir þá sem vilja taka þátt í sýningunni.
Á ráðstefnunni verða veittar viðurkenningar fyrir athyglisverðustu og metnaðarfyllstu verkefnin í stafrænni miðlun í sýningum og söfnum á Norðurlöndunum að mati dómnefndar. Í tengslum við ráðstefnuna verða skipulagðar heimsóknir á sýningar og söfn á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni og verðlaunaverkefni fyrri ára verða skoðuð.
Mynduð hefur verið undirbúningsnefnd frá FÍSOS – Félagi íslenskra safna og safnmanna, Þjóðminjasafni Íslands, Minjasafni Reykjavíkur, menningarmiðlun innan sagnfræðideildar Háskóla Íslands og Gagarín. Fulltrúar þessa aðila taka þátt í verkefnisstjórn sem vinnur í samstarfi við Digital Cultural Heritage Centre of Expertise og fleiri aðila frá hinum Norðurlöndunum, í að skipuleggja verkefnið, móta dagskrána og fjármagna verkefnið. Sótt er um fjármagn til að halda NODEM hér á landi hjá norrænum sjóðum og hjá aðilum á Íslandi, opinberum aðilum og fyrirtækjum, auk þess sem þátttakendur greiða þátttökugjald.
Undirbúningshópinn skipa:
-
Bryndís Sverrisdóttir, yfirmaður miðlunarsviðs hjá Þjóðminjasafninu, bryndis.sverrisdottir@natmus.is, www.natmus.is
-
Eggert Þór Bernharðsson, dósent í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, eggthor@hi.is, http://www.hug.hi.is/page/hug_starfsfolk
-
Guðbrandur Benediktsson, deildarstjóri miðlunardeildar hjá Minjasafni Reykjavíkur, gudbrandur.benediktsson@reykjavik.is, www.minjasafnreykjavikur.is
-
Guðný Káradóttir, framkvæmdastjóri Gagarín ehf., gudny@gagarin.is, www.gagarin.is,
-
Helga Maureen Gylfadóttir, fulltrúi Félags íslenskra safna og safnmanna, safnvörður húsadeildar hjá Minjasafni Reykjavíkur, helga.maureen.gylfadottir@reykjavik.is
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands hefur tekið að sér framkvæmd NODEM 2008, og er Margrét Guðmundsdóttir verkefnisstjóri.
Auk innlendra aðila tekur fjöldi aðila annars staðar á Norðurlöndunum þátt í undirbúningi og framkvæmd, m.a. við val á fyrirlesurum og verkefnum sem kynnt verða, fundarstjórn o.fl.
Saga NODEM nær aftur til ársins 2003 þegar ráðstefnan var fyrst haldin í Stokkhólmi í samvinnu við sænska Safnaráðið, en hvatinn að ráðstefnunni kom frá Halina Gottlieb hjá Digital Cultural Heritage Centre of Expertise hjá Interactive Institute í Svíþjóð. Árið 2004 var NODEM haldið í Finnlandi og árið 2006 í Osló. Þrisvar hafa íslensk verkefni fengið viðurkenningu á NODEM: farsímalausn í Listasafni Reykjavíkur árið 2003, margmiðlun um landnámsbæinn Hofsstaði í Garðabæ 2004 og landnámssýningin Reykjavík 871 +/-2 árið 2006.
Ávinningurinn af því að halda NODEM á Íslandi er mikill, bæði fyrir safnafólk í landinu og fyrirtæki í hönnun og tækni. Söfnum og setrum sem sinna menningarmiðlun gefst tækifæri til að sækja þekkingu og fræðast á ráðstefnunni um möguleika til miðlunar og komast í tengsl við norræna samstarfsaðila á þessu sviði. Ráðstefnan skapar tækifæri til að auka gæði og fjölbreytni í framboði á afþreyingu og fræðslu fyrir ferðamenn og heimafólk.
Margrét Guðmundsdóttir verkefnisstjóri veitir allar nánari upplýsingar.
Margrét Guðmundsdóttir
Hugvísindastofnun Háskóla Íslands
Gimli
Sími: 525 4462
Netfang: mgu@hi.is |